Námskeið

og

fyrirlestrar

Ég elska að kenna og deila ástríðu minni fyrir aukinni velsæld, vellíðan og mennsku á vinnustöðum.


Skoðaðu það sem ég hef upp á að bjóða og heyrðu endilega í mér ef þú vilt sérsniðinn fyrirlestur eða námskeið.

Um mig

Um mig

Ég er Lella, ACC vottaður markþjálfi, mannauðs- og markaðssérfræðingur með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi.


Ég er sterkur leiðtogi og breytingaafl sem nýtir aðferðir markþjálfunar til að styðja fólk og fyrirtæki til vaxtar. Ég hef mikla reynslu af verkefnastjórnun, markaðsmálum, samskiptum og stýringu mannauðs.


Ég hef undanfarin ár starfað við markaðsmál og samskipti i ferðaþjónustu og hef verið ófeimin við að horfa út fyrir kassann og feta nýjar slóðir. Einnig hef ég greint vinnustaðamenningu, samskipti og vinnuferla og lagt fram leiðir til úrbóta. Ég hef mikla reynslu af því að efla mannlega þáttinn á vinnustöðum og byggja upp jákvæða og hvetjandi vinnustaðamenningum


Ég er með ACC vottun frá International Coaching Federation með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá sama skóla. Auk þess er ég með BA gráðu í sálfræði. Ég er líka WorkHuman Certified Professional. Einnig hef ég sótt námskeið og fyrirlestra um hvetjandi forystu, jákvæða sálfræði og núvitund á vinnustað og finnst ég þar hafa komist í algjöra gullnámu.


Ég er líka með réttindi til að gera NBI huggreiningar sem eru ótrúlega sterkt tól þegar verið er að vinna með teymi og bæta samskipti.


Hafðu samband

Lella Erludóttir

868-1223

lella@lella.is

Instagram Outline Logo
Simple Facebook Icon